Fréttir

Frábær árangur á Scania Cup
Körfubolti | 12. apríl 2023

Frábær árangur á Scania Cup

Frábær árangur allra liða frá Keflavík á Scania Cup 2023
Alls fóru þrjú lið á vegum Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur á Norðurlandamótið Scania Cup í Svíþjóð, alls 46 iðkendur ásamt fylgdarliði. Okkar lið stóðu sig frábærlega og erum við virkilega stolt af þessum hópum.
7. flokkur karla og 7. flokkur kvenna í Keflavík spiluðu hvort um sig 6 leiki og unnu þá alla. Sigruðu bæði lið mótið í sínum keppnisflokkum og enduðu bæði lið með bikar í hönd og gull um hálsinn. Scania meistarar !!! Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.
10 flokkur kvenna spilaði alls 6 leiki á mótinu. Þær sigruðu 4 leiki af sex og enduðu í 5.sæti á mótinu sem er virkilega flottur árangur á þessum aldri! Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan árangur.
Einnig voru iðkendur frá Keflavík sem fengu einstaklingsverðlaun :
Scania Queen 2010 stúlkur : Björk Karlsdóttir
Scania King 2010 drengir : Sigurður Karl Guðnason
Fighting spirit 2010 stúlkur : Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir
Fighting spirit 2010 drengir : Ágúst Ingi Kristjánsson
MVP í úrslitaleik 2010 stúlkur: Lísbet Lóa Sigfúsdóttir
MVP í úrslitaleik 2010 drengir: Arnar Freyr Elvarsson
Björk Karlsdóttir, Sigurður Karl Guðnason og Bartosz Porzezinski voru öll valin í úrvals lið Scania í sínum aldurshópi.
Virkilega flottur árangur iðkenda frá Keflavík á stórmótinu Scania Cup og óskum við iðkendum og þjálfurum innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!
Framtíðin er björt - Áfram Keflavík !!!

 

Myndasafn