Fréttir

Sýndarmiði á leiki
Körfubolti | 15. janúar 2021

Sýndarmiði á leiki

Þór Þorlákshöfn koma í heimsókn í kvöld og hefst leikurinn kl. 20:15. Stelpurnar eiga svo leik á morgun laugardag gegn Fjölni hér heima kl. 16:00.
Við viljum vekja athygli á því að hægt er að kaupa sýndarmiða á leikina hjá liðunum okkar til að styrkja deildina. Það er ljóst að engar tekjur koma inn af leikjum í dag sem munar verulega um í rekstri.
Leikurinn í kvöld er sýndur í beinni á Stöð 2 Sport og áskrift að þeirri stöð er aðeins 3.990 á mánuði. Við minnum á að skrá Keflavík sem ykkar lið ef þið ætlið að kaupa ykkur áskrift á vef Stöðvar 2 https://stod2.is/vinnumsaman
Þeir sem eru nú þegar með áskrift geta skráð Keflavík sem sitt lið, farið inn á þennan hlekk https://minar.vodafone.is/innskraning/eid og skoðið leiðbeiningarmyndband sem við setjum í comment undir þennan þráð.
Hægt er að kaupa sýndarmiða á 2000 kr í vefverslun hér
Þeir sem vilja leggja beint inná deildina, geta lagt inn á 0142-05-20001 kt: 510894-2009. Þar getið þið ráðið miðaverðinu 🙂