Skráning iðkenda

Skráning iðkenda

  • Allir iðkendur hjá  Keflavík þurfa að vera skráðir.
  • Forráðamenn skrá sín börn inn í gegnum Sportabler skráningakerfið og þarf að endurnýja skráningu árlega.
  • Skráningar fara fram í gegnum Sportabler sem hægt er að nálgast á heimasíðu Keflavíkur eða á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/keflavik
  • Ef iðkandi byrjar á miðju tímabili þá þarf að senda póst á hjordis@keflavik.is og fá aðstoð við skráningu og endurreiknun á æfingagjöld.
  • Foreldrar þurfa að  sækja sér  Sportabler appið.  
  • Hér má sjá leiðbeiningar um hvernig á að nýskrá sig og kaupa námskeið í gegnum Sportabler.

http://help.sportabler.com/is/support/solutions/articles/67000345966-n%C3%BDskr%C3%A1ning-%C3%AD-sportabler

http://help.sportabler.com/is/support/solutions/articles/67000346148-kaupa-aefingagj%C3%B6ld-n%C3%A1mskei%C3%B0-%C3%AD-gegnum-vefverslun

 

Verðskrá veturinn 2023-2024

Minnibolti 1-2.bekkur

72.990 kr

Minnibolti 3-4.bekkur

84.570 kr

Minnibolti 5-6.bekkur

91.650 kr

7-8.flokkur

98.730 kr

9.flokkur og eldri

103.450 kr 

 

 

Greiðslur

  • Kreditkort - hægt að skipta greiðslum niður á 1 – 9 greiðslur.  Umsýslugjald leggst á skiptingu á korti sem er 2% af heildargjaldi
  • Greiðsluseðill -skipt niður á 1-9 greiðslur. Athugið að greiðsluseðlar eru sendir í gegnum Motus og leggst seðilgjald á hvern reikning auk þess sem vextir reiknast á greiðsluseðla séu þeir greiddir eftir gjalddaga.
  • Greiðslur æfingagjalda eru forsenda þess að iðkandi megi taka þátt í æfingum og mótum á vegum Keflavíkur.

Iðkandi hættir:

  • Þegar iðkandi hættir skal senda tilkynningu í tölvupósti á hjordis@keflavik.is þar sem fram kemur nafn og kennitala iðkandans
  •  Æfingagjöld falla niður frá næstu mánaðamótum eftir að forráðamaður hefur tilkynnt með tölvupósti að iðkandi sé hættur. Ekki er  nóg að láta þjálfara vita.
  • Æfingagjöld fást ekki endurgreidd afturvirkt.

 

 

Hvatagreiðslur

  • Hvatagreiðslur Reykjanesbæjar eru rafrænar frá og með áramótum 2021 og hafa forráðamenn sem skrá iðkendur á þessu ári val um að haka við í skráningarferlinu um að nota hvatagreiðsluna til lækkunar æfingargjaldinu.  Það er á ábyrgð forráðamanna að nýta sér hvatagreiðslurnar.
  • Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Reykjanesbæjar - athugið að hvatagreiðslur fást ekki endurgreiddar þegar búið er að ráðstafa þeim.  Hvatagreiðslur/Incentive payments | Upplýsingavefur sveitarfélagsins Reykjanesbæjar (reykjanesbaer.is)
  • Hvatagreiðsla fyrir árið 2023 er 45.000 kr. og er hún alltaf tengd skráningum hverju sinni.