Fréttir

Körfuboltaæfingar fyrir leikskólahóp að hefjast
Karfa: Yngri flokkar | 9. september 2024

Körfuboltaæfingar fyrir leikskólahóp að hefjast

Þann 14. september næstkomandi mun hefjast að nýju hið vinsæla 10 vikna körfuboltanámskeið fyrir börn fædd 2019-2021. 

Lögð er áhersla á skemmtilega hreyfingu og góðar æfingar í boltatækni. 

Æft er á laugardögum kl. 11:40 - 12:30 í Íþróttahúsinu við Sunnubraut. Þjálfari á námskeiðinu er Anna Ingunn ásamt aðstoðarþjálfurum. 

Skráning fer fram í gegnum Sportabler og er gjald fyrir námskeiðið 12.000 kr.

Hlökkum til að sjá sem flesta í salnum, við tökum vel á móti öllum.

Barna og Unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur