1-0 fyrir Keflavík eftir 94-103 sigur í frábærum körfuboltaleik í Grindavík
Segja má að Keflvíkingar hafi mætt í Röstina í gær til þess að taka heimavallarforskotið af Grindvíkingum. Þeir mættu vel stemmdir og náðu góðu forskoti í fyrri hálfleik sem dugði til sigurs. Leikurinn var vel leikinn af tveimur bestu liðum landsins, hittnin góð og mörg frábær tilþrif. En Keflavík var áberandi betra liðið í þetta skiptið og uppskar verðskuldaðan sigur.
Fjörið hófst strax á upphafsmínútum. Eftir nokkurt þóf smellti Magnús þristi og Lewis svaraði í sömu mynt örfáum sekúndum síðar. Ed átti stuttu síðar svaka troðslu sem kom okkar mönnum í 5-11 forystu. Smá hikst kom á Keflvíkinga þegar Kristinn dómari dæmdi ekki á greinilegt brot Guðlaugs á Ed í hraðupphlaupi. Ed mótmælti og uppskar tæknivillu. En það stóð ekki lengi í mönnum. Magnús fór á kostum í fyrsta leikhluta og eftir þriðja þrist hans í röð var staðan 13-17.
Eddi átti stórleik og hér sést hann skora yfir Pál Axel
(mynd fengin að láni hjá Vikurfréttum)
Þá fór Guðlaugur Eyjólfsson Grindjáni í gang, minnkaði muninn í 16-19 með 3ja stiga skoti úr þröngu færi, en Gulli átti eftir að setja sex slík skot oní í leiknum úr 10 tilraunum. Ed Saunders tók svo öll völd á vellinum. Hann skoraði grimmt á stuttum tíma með miklum tilþrifum, önnur alvöru troðsla leit dagsins ljós og síðan þristur. Damon var skynsamur og nýtti sér líkamsstyrk sinn í viðureigninni við Lewis og sótti stíft inn að körfunni.
Eftir fyrsta leikhluta var staðan 26-33 og áhorfendur höfðu orðið vitni að sannkallaðri körfuboltasýningu. Í öðrum leikhluta hélt sýningin áfram en nú voru Keflvíkingar áberandi í aðalhlutverki. Gaui Skúla kom inn fyrir Magga og hélt uppteknum hætti, setti átta stig á tveimur mínútum og síðan átti Falur frábæra sendingu á Jonna sem tróð viðstöðulaust. Sverrir Þór var einnig grimmur báðu megin á vellinum.
Gríðarlegur hraði var í leiknum og virtust Grindvíkingar ekki ná tökum á honum, þrátt fyrir að þeim henti yfirleitt vel að leika hratt. Í hálfleik var staðan 46-62 og útlitið bjart hjá Keflavík.
Í seinni hálfleik voru Grindvíkingar stöðugt að reyna að minnka muninn, ekki síst með þriggja stiga skotum og keyrslum frá Lewis inn að körfunni. En Keflavík átti alltaf svar við öllum áhlaupum og Damon sallaði niður körfum þegar á þurfti að halda. Hittnin var áfram góð og settu Gaui, Falur og Maggi niður þrista og nýttu færin vel. Alls hitti Kef úr 12 af 21 3ja stiga skoti sem er 57% nýting, en það þykir hreint frábært utan línunnar. Gunnar Einarsson var beittur í seinni hálfleik og barðist vel. Skemmtileg tilþrif sáust, ekki síst þegar Grindvíkingar tvídekkuðu Damon, en hann fann Jonna og Fal fría undir körfunum.
Damon var drjúgur að vanda og sótti stíft að körfu Grindvíkinga
(mynd fengin að láni hjá Vikurfréttum)
Heilt yfir var um að ræða sýningu hjá Keflavíkurliðinu í fyrri hálfleik og meira jafnræði í seinni hálfleiks. Leikurinn var í háum gæðaflokki, hraður og fjörugur og hittnin góð. Grindvíkingar léku einnig mjög vel nema hvað þeir misnotuðu nokkur færi nálægt körfunum.
En staðan er nú 1-0 fyrir Keflavík og næsti leikur í Keflavík á mánudaginn er afar mikilvægur fyrir þróun mála í þessu einvígi. Ef Keflavík landar öðrum sigri er staðan orðin vænleg, en Grindvíkingar hafa einnig tök á því að opna einvígið aftur upp á gátt með útisigri. Allt Keflavíkurliðið á hrós skilið fyrir frammistöðuna í leiknum og við vonum að framhald verði á – ÁFRAM KEFLAVÍK!!!