1. deild kvenna - Keflavík heimsækir ÍS í kvöld
Tólfti leikur Kefllavíkur í 1. deild kvenna fer fram í Kennaraháskólanum í kvöld og hefst kl. 19.30. Stúlkurnar okkar hafa hvergi slegið af en Stúdínur hafa hins vegar verið að hressast upp á síðkastið. Þar eru reyndar neðstar í deildinni með 4 stig og þurfa á nokkrum sigrum að halda ef þær vilja komast upp að hlið UMFN og Hauka sem hafa 10 stig.
Eflaust mæta einhverjar úr kvennaráðinu til að bakka upp sínar konur í kvöld, en þessi mynd var tekin á Kjörísbikarúrslitum, en þá höfðu menn (konur) yfir nógu að kætast.