Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 12. janúar 2011

10. flokkur kvenna - bikarleikur

10. flokkur kvenna spilaði s.l. þriðjudag við Breiðablik í átta liða úrslitum í bikarkeppni kvenna.  Okkar stelpur mættu mjög grimmar til leiks að vanda og spiluðu frábæra vörn frá fyrstu mínútu til þeirra síðustu.  Sóknarleikurinn var einnig góður og rúlluðu leikkerfin vel allan leikinn.  Jón Guðmundsson þjálfari liðsins stýrði liðinu eins og herforingi frá hliðarlínunni og náði því besta útúr flestum leikmönnum liðsins.  Leikurinn var því aldrei spennandi og urðu lokatölur leiksins 55-40 Keflavík í vil .  Stelpurnar eru því búnar að tryggja sig í 4 liða úrslit og stefna að sjálfsögðu að því að verja bikartitill sem þessi flokkur vann á síðasta ári.  

Til hamingju stelpur með frábæran sigur......Áfram Keflavík.