10. flokkur kvenna er Bikarmeistari 2004 - Bikartitill númer 50 hjá Keflavík í yngri flokkum
Keflavíkurstúlkur urðu bikarmeistarar annað árið í röð í 1988-árganginum hjá kvenfólkinu eftir öruggan 45 stiga sigur á nágrönnum sínum úr Njarðvíkunum í bikarúrslitaleik 10. flokks kvenna, 78-25.
Keflavík vann bikarúrslitaleik sömu liða í fyrra með 22 stigum og hefur mikla yfirburði í þessum flokki enda margar af allra efnilegustu körfuknattsleikskonum landsins þar innanborðs. Bryndís Guðmundsdóttir var valinn maður leiksins en hún var með tvöfalda tvennu, skoraði 22 stig, tók 20 fráköst auk þess að gefa 5 stoðsendingar og verja 4 skot.
María Ben Erlingsdóttir var einnig mjög sterk undir körfunum og bætti við 21 stigi, 10 fráköstum og 3 vörðum skotum. Hrönn Þorgrímsdóttir skoraði 11 stig þar af þrjár þriggja stiga körfur á fyrstu 4 mínútum leiksins og leikstjórnandinn, Bára Bragadóttir, stjórnaði sínu liði vel, átti 9 stoðsendingar og stal 5 boltum án þess að tapa einum einasta bolta í leiknum en Bára skoraði 2 stig.
Hjá Njarðvík var Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir atkvæðamest með 15 stig og 14 fráköst. Margrét Kara Sturludóttir var næststigahæst með 3 stig, auk þess að taka 9 fráköst og verja 3 skot.
Þetta var 50. bikarmeistaratitil Keflavíkur í yngri flokkum, en næstir í röðinni eru KR-ingar með 19. Ótrúlegir yfirburðir þar.
Hér má sjá grein um Bikartitla í yngri flokkum.
Til hamingju með þetta stelpur!