11. flokkur áfram í B-riðli
B-riðill 11. flokks karla spilaði fjölliðamót hér á sunnubrautinni um helgina. Eftir tvo góða og sannfærandi sigra okkar manna í gær gegn Haukum og Grindavík, áttu strákarnir því miður dapran dag í dag og töpuðu fyrir Fjölni í úrslitaleik um hvor spilaði í A-riðli í næsta fjölliðamóti. Þá er bara að gera betur næst og vinna sig upp í A-riðil, þar sem strákarnir eiga heima!
Úrslit leikja og stigaskor.
Keflavík - Haukar : 63-26 (33-11)
Stigaskor Keflavíkur: Þröstur Leó Jóhannsson 19, Sigfús Jóhann Árnason 11, Magni Ómarsson 11, Aron Davíð Jóhannsson 6, Bjarni Freyr Rúnarsson 6, Aron Freyr Eyjólfsson 4, Guðmundur Gunnarsson 4 og Stefán Geirsson 2. Arnar Guðjón Skúlason og Lárus Þór Skúlason náðu ekki að skora í þessum leik.
Keflavík - Grindavík : 67-58 (41-22)
Stigaskor Keflavíkur: Sigfús Jóhann Árnason 20, Magni Ómarsson 19, Þröstur Leó Jóhannsson 19, Aron Davíð Jóhannsson 5, Aron Freyr Eyjólfsson 2 og Bjarni Freyr Rúnarsson 2. Arnar Guðjón Skúlason, Guðmundur Gunnarsson, Lárus Þór Skúlason og Stefán Geirsson náðu ekki að skora í þessum leik.
Keflavík - Fjölnir : 56-61 (29-25)
Stigaskor Keflavíkur: Þröstur Leó Jóhannsson 18, Sigfús Jóhann Árnason 17, Magni Ómarsson 11, Aron Freyr Eyjólfsson 8 og Aron Davíð Jóhannsson 2. Arnar Guðjón Skúlason, Bjarni Freyr Rúnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Lárus Þór Skúlason og Stefán Geirsson náðu ekki að skora í þessum leik.