Fréttir

11. flokkur áfram í bikar eftir sigur í nágrannaslag
Karfa: Yngri flokkar | 8. janúar 2014

11. flokkur áfram í bikar eftir sigur í nágrannaslag

11.flokkur drengja tók á móti Njarðvík í 16 liða úrslitum í bikarkeppni KKÍ í gær en leikurinn fór fram í TM-Höllinni og var hinn skemmtilegasti.. Gestirnir byrjuðu betur og voru með 10 stiga forskot eftir 1. leikhluta. Keflavík náði að saxa á forskotið og loks að jafna fyrir leikhlé en staðan var 44-44 í hálfleik. Seinni hálfleikur var ekki síður spennandi. Keflavík byrjaði seinni hálfleikinn betur og unnu þriðja leikhluta með 10 stigum.  Njarðvík gafst ekki upp og náðu að klóra í bakkann í 4. leikhluta en Keflavík náði að halda út og landaði fjögurra stiga sigri í hörkuleik. 
 
Drengirnir skiluðu allir sinni vinnu vel í kvöld og var virkilega gaman að horfa á þá.
 
Stigaskor:
Sigurþór 27 stig
Tryggvi 26 stig
Arnór Sveinsson 16 stig 
Þorbjörn 12 stig
Knútur 7 stig
Arnór Ingi 7 stig
Marvin 3 stig