11. flokkur karla komst í úrslit í bikarkeppninni en tapaði þar gegn Fjölni
Fjölnir vann öruggan og auðveldan 28 stiga sigur á Keflavík, 85-57 í fyrsta bikarúrslitaleik sunnudagsins sem var í 11. flokki karla. Fjölnir komst meðal annars í 17-5 og 26-8 og leiddi með 29 stigum í hálfleik, 51-22. Keflavík náði að minnka muninn í 11 stig í upphafi seinni hálfleiks (55-34) en þá gáfu Fjölnismenn aftur í og unnu örugglega. Árni Ragnarsson var valinn maður leiksins en hann skoraði 14 stig, stal 8 boltum, tók 5 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Árni skoraði 7 stig og gaf 3 stoðsendingar á fyrstu 8 mínútunum sem Fjölnir vann 26-8 og gerði út um leikinn. Brynjar Þór Kristófersson bætti við 18 stigum og 7 fráköstum, Elvar Orri Hreinsson var með 16 stig og 4 stolna bolta og Þorsteinn Sverrisson skoraði 15 stig og tók 7 fráköst auk þess að skora 9 fyrstu stig liðsins í leiknum. Þá átti Garðar Sveinbjörnsson mjög fína innkomu af bekknum, skoraði 10 stig, tók 6 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og hitti úr 3 af 4 þriggja stiga skotum sínum. Hjá Keflavík var Adam Hart Fjeldsted með 16 stig og 8 fráköst og Aron Rúnarsson skoraði 12 stig, tók 6 fráköst, stal 4 boltum og gaf 4 stoðsendingar.
Þess má geta að Fjölnir hefur ekki tapað leik á íslandsmóti og í Bikarkeppni síðustu 2 tímabil. Keflavík hefur verið að flakka á milli A og B-riðils síðustu ár og því má þetta kallast góður árangur hjá drengjunum að komast í úrslitin.
Tölfræði leiksins má finna hér