Fréttir

Körfubolti | 21. apríl 2003

11 þúsund áhorfendur í Keflavík á síðustu leiktíð

Áhorfendur á heimaleiki Keflavíkur á nýliðinni leiktíð voru rúmlega 11 þúsund og hafði fjölgað frá um 8700 frá árinu á undan. Þar munar mestu um bikarkeppnina en í ár komumst við í úrslit en í fyrra duttum við út í 8 liða úrslitum. Hér eru skoðaðir saman allir þeir leikir sem Keflavík hefur af tekjur, þ.e.a.s. heimaleikir og bikarleikir.

Athyglisvert er að bæði árin er áhorfendafjöldi í úrslitakeppninni góður eða um 4500 manns. Þetta er um 40-50% af heildarfjölda vetrarins. Athyglisvert er að við náum sama áhorfendafjölda í ár og í fyrra í úrslitakeppninni þrátt fyrir að leikirnir séu færri. Því má telja að "ef" leikirnir hefðu orðið fleiri í úrslitunum gegn Grindavík hefðu 12-1500 manns bæst við.

Þegar allt er til tekið komu í fyrra 8700 manns á 23 leiki sem er um 380 að meðaltali, en í ár komu um 11000 á 26 leiki sem er að meðaltali 425 manns á leik. Bæði árin sjáum við sömu hlutina gerast, aðsóknin er góð á úrslitakeppni og þegar fjör færist í leikinn í bikarkeppnunum, en í deildinni er mætingin frekar slök nema gegn Njarðvík en það var eini deildarleikurinn þar sem komu yfir 500 manns.