12 þúsund heimsóknir á einum mánuði
Það er gaman að vita til þess að margir kíkja inn á heimasíðuna okkar. Á einum mánuði voru heimsóknirnar um 12 þúsund. Ekki segir það þó alla söguna því margir hafa eflaust kíkt inn oftar en einu sinni á tímabilinu, sumir kannski daglega og þeir hörðustu oftar en einu sinni á dag. Samt er augljóst að síðan er vinsæl og að meðaltali eru um 400 heimsóknir á dag. Við munum reyna, eftir sem áður, að segja netverjum frá því sem er að gerast hjá okkur og reynum einnig að vera heimild fyrir aðra fjölmiðla landsins, því þeir notast oft við okkar fréttir, en það er hið besta mál, enda mega menn treysta því sem hér er sagt um félagið og liðin okkar.