16 stiga fyrirhafnarlítill sigur gegn Tindastóli í kvöld
Leikurinn gegn Tindastóli var ekki sérlega skemmtilegur, það verður að viðurkennast. Keflavíkurdrengir virtust ætla að landa sigri í hægaganginum og það tókst án erfiðismuna, þótt vissulega sé slíkt hættulegt. En getumunurinn er mikill á liðunum og því landaði Keflavík auðveldum sigri í kvöld, án fyrirhafnar.
Í byrjun var jafnræði, og var byrjunarlið Keflavíkur ekki með hugann við leikinn. Smá snerpa komst í liðið með innáskiptingunum og voru t.d. Hjörtur og Halldór sprækir í öðrum leikhluta. Staðan í hálfleik var 43-33, en annar leikhluti vannst 25-15.
Seinni hálfleikur byrjaði með smá krafti sem síðan fjaraði út. Forskotið var þægilegt og einhvern veginn náðist ekki upp sú stemming sem nauðsynleg er til að leika vel. Vörnin var slök og okkar menn voru yfirleitt langt frá andstæðingunum þegar þeir fengu boltann. Nick, Glover og Gunni E voru skástir í afslöppuðu liði okkar manna í kvöld. Hjá gestunum voru þeir Svavar og Fletcher allt í öllu. Lokastaðan var 97-81.
En nú tekur alvaran við! Á sunnudaginn er STÓRleikur í Sláturhúsinu þegar nágrannarnir úr Njarðvík koma í heimsókn í Bikarleik, en eins og við vitum eru allir bikarleikir úrslitaleikir. Að þeim leik loknum verður farið til Sviss og leikið gegn Benetton Friburg n.k. fimmtudag.