17. júní kaffi Keflavíkur í Myllubakkaskóla
Hið árlega kaffihlaðborð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður á sínum stað í Myllubakkaskóla á 17. júní nk. Þar geta gestir gætt sér að gómsætum veitingum, s.s. heitum réttum, flatkökum og tertum ásamt rjúkandi heitu kaffi og gosi. Húsið opnar kl. 14.30 og er opið þar til dagskrá lýkur í skrúðgarðinum.
Kæru Reykjanesbæingar, lítið við og styðjið sigursælasta körfuboltalið Íslands!