17. júní kaffi körfunnar
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur verður með fjáröflunarkaffi í Myllubakkaskóla þann 17. júní næstkomandi. Þar geta gestir og gangandi komið og fengið sér kaffi, gos, kökur og heita rétti eins og maginn leyfir. Það kostar 1500kr inn og börn yngri en 12 ára fá frítt. Nú er um að gera að taka fjölskylduna með þegar allir verða svangir og skella sér í Myllubakkaskóla þar sem vel verður tekið á móti öllum. Hlökkum til að sjá sem flesta.
Áfram Keflavík!