17. júní kaffi körfunnar 2011
17. júní kaffi Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur mun verða á sínum stað í ár á föstudaginn næstkomandi. Mikil aðsókn var í veitingarnar hjá okkur í fyrra og vonandi mun það ekki minnka í ár. Boðið verður upp á kökur, heita rétti, kaffi, gos og Icelandic Glacial vatn. Það kostar 1500 kr. fyrir manninn, en börn yngri en 12 ára fá frítt inn ef þau koma í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum. Svo getur fólk fengið sér kræsingar að vild hjá okkur.
Staðsetning kaffisölunnar er í Myllubakkaskóla og er gengið þeim megin inn sem er nær Sjúkrahúsinu.
Hlökkum til að sjá sem flesta!