Fréttir

Körfubolti | 27. október 2004

17 stiga útisigur á Grindavíkurstúlkum

Keflavíkurkonur virkuðu eitthvað stressaðar í upphafi leiksins í kvöld þegar þær mættu Grindavík í fyrsta skipti í vetur. Það hlýtur að hafa verið undarleg tilfinning fyrir Erlurnar tvær að leika gegn sínum gömlu félögum og töluverð spenna var fyrir leikinn. Stigaskorið í upphafi var lágt og staðan 12-10 fyrir heimamenn eftir 10 mínútur.

Síðan fóru Keflavíkurstúlkur að herða vörnina og þær Reshea og Birna létu til sín taka í sóknarleiknum. Annar leikhluti vannst með sjö stigum og staðan í hálfleik var 31-26 fyrir Keflavík.


Birna skorar tvö af stigum sínum (mynd fengin að láni hjá VF.IS)

Eftir því sem á leikinn leið náði Keflavík betri tökum á leiknum og í lokin var munurinn 17 stig, 71-54 og þægilegur sigur í Röstinni. Eins og fyrr segir voru Reshea og Birna illviðráðanlegar í sókninni og gaman að sjá Birnu koma svo sterka inn eftir meiðsli á fingri. Hún smellti niður fimm þristum og skoraði alls 21 stig. Reshea skoraði 26 stig, tók 8 fráköst og stal 7 boltum. Aðrar voru frekar rólegar í stigaskorun og er fróðlegt að fylgjast með því hve mikil dreifing er á stigum milli leikja í liðinu. Bryndís var grimm í fráköstunum, sótti 9 slík. Hittni Keflavíkurkvenna var frekar slök í leiknum, aðeins 16 af 53 2ja stiga tilraunum rötuðu rétta leið, en vítanýtingin var til fyrirmyndar, en stúlkurnar nýttu 15 af 16 vítum í leiknum sem jafngildir 94% hittni.

Svæðisvörnin virkaði vel og áttu Grindavíkurstúlkur erfitt með að nýta sér skotfærin utan af velli, þær hittu aðeins úr 3 af 18 þriggja stiga tilraunum. Keflavík var ekki að leika toppleik í kvöld, en góður varnarleikur mest allan tímann dugði til að sigla heim öruggum sigri.

Hér má sjá tölur úr leiknum.