Fréttir

Körfubolti | 1. mars 2004

19 þristar þegar Keflavík vann Þór Þorlákshöfn í síðasta heimaleiknum í deildarkeppninni

Í kvöld var sett á svið þriggja stiga sýning. Hjörtur Harðarson og Gunnar Einarsson byrjuðu leikinn með flugeldasýningu og dúndruðu niður þristum. Hjörtur hélt áfram frá því í KR leiknum og skellti niður fjórum í röð í byrjun. Gunni var einnig sjóðandi og endaði með sex þrista úr átta tilraunum. Halldór átti síðan flotta innkomu og setti niður 2 þrista og fékk að auki vítaskot í seinna skotinu, svokallað "4-point-play" sem er frekar sjaldgæft í körfuboltanum.

Eftir fyrsta leikhlutann var staðan 34-21 og síðan 63-42 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var nánast formsatriði og rokkaði forystan á bilinu frá 10 til 20 stig mest allan tímann. Lokastaðan var 117-102 og enn einn heimasigurinn í höfn. En tapið var Þórsurum dýrt því þeir eru nú fallnir aftur í 1. deildina ásamt Blikum úr Kópavogi.


Hjörtur átti prýðilega leik í kvöld og hitti sérlega vel úr 3ja stiga skotunum. Hann hefur nú sett 12 þrista úr 16 tilraunum í tveimur síðustu leikjum, en það þykir sérlega góð hittni!

Lítið var um varnir í seinni hálfleiknum og leikurinn var nánast eins og æfing þar sem allir vildu fá að spreyta sig í sókninni. Allir Keflvíkingarnir komust á blað og bestir í kvöld voru þeir Gunnar Einarsson og Nick Bradford með 27 og 20 stig. Derrick hafði sig lítið í frammi, en hann varð fyrir því óláni að snúa sig á ökkla og lék ekkert með síðasta fjórðunginn. Frákastahæstir voru þeir Nick og Halldór, með 8 fráköst hvor.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Nú er ljóst að 3ja sætið í deildinni er okkar og andstæðingarnir í fyrstu umferð úrslitakeppninnar verða annað hvort Haukar eða Tindastóll, það skýrist í lokaumferðinni sem háð verður á fimmtudaginn, en þá leikum við einmitt gegn Haukum að Ásvöllum. Ef við vinnum Hauka eða ef Tindastóll vinnur Njarðvík þá lendum við á móti Haukum, en ef töpum fyrir Haukum og Tindastóll tapar fyrir Njarðvík þá lendum við gegn Tindastóli.

Þess má þó geta að leikur Tindastóls og Njarðvíkur verður einkar athyglilsverður, því það félag sem sigrar lendir í 4ða sæti en þeir sem tapa lenda í því fimmta. Því má segja að úrslitakeppnin hefjist strax á fimmtudaginn hjá þessum tveimur liðum.