2-1 fyrir Keflavík eftir fyrirhafnarlítinn sigur, 97-79
Leikurinn í dag var eign Keflvíkinga frá upphafi. Strax á fyrstu mínútum byggðist upp forysta með hröðum leik og eftir fyrsta leikhluta var staðan orðin 30-18. Aðeins fór um áhorfendur í öðrum leikhluta, því allir "stóru" mennirnir úr byrjunarliðinu, þeir Glover, Nick og Jonni, fengu snemma sína þriðju villu og sátu þeir á bekknum stærsta hluta fyrri hálfleiksins. En það kom óverulega að sök, því Gunnarnir tveir, Einarsson og Stefánsson, tóku að sér stigaskorið í öðrum leikhluta, gerðu 18 stig, þar af var Stef með tvær "from downtown". Samt dró aðeins saman með liðunum eftir nokkra þrista frá gestunum og staðan í hálfleik var 48-42.
Í seinni hálfleik sáu menn strax að Keflvíkingar ætluðu ekki að slaka á og munurinn hélst allan tímann og jókst þegar leið á leikinn. Í lokin var hann 18 stig, 97-79, og okkar menn komnir í vænlega stöðu í einvíginu. Þrjá sigra þarf til að komast í úrslitin og Keflvíkingar hafa nú tvö tækifæri til þess að klára þau mál, fyrst á þriðjudaginn í Seljaskóla, og ef það ekki tekst, þá á fimmtudaginn í Sláturhúsinu.
Nick Bradford átti skínandi leik, gerði m.a. 28 stig, en auk hans voru Jonni og Arnar Freyr mjög góðir. Magnús gerði allt vel nema hann náði ekki að stilla miðið utan línunnar, en það skipti ekki máli. Sverrir og Gunni E voru traustir og Gunni Stef með flotta innkomu. Glover var rólegur, enda sat hann á bekknum hálfan leikinn. Setti samt 19 stig og nýtti færin sín vel. Elli og Halldór leystu sín hlutverk vel af hendi. Hjá ÍR var Grant góður og Ómar skæður í sóknarfráköstunum, eins átti Sveinbjörn mjög góðan sprett í seinni hálfleik, mikið efni á ferð þar.
Enn og aftur var það varnarleikurinn sem fleytti okkar liði í gegnum andstæðingana. ÍR-ingar þurftu að kljást við pressuvörn mest allan tímann og náðu ekki að stilla upp sókn sinni sem varð fyrir vikið marklaus. Það gaf okkar mönnum hins vegar oft færi á hraðupphlaupum sem voru vel nýtt. Jonni kórónaði góðan leik sinn með flottri "sirkus-troðslu" eftir sendingu frá Nick á lokasekúndunum, en því miður var karfan ekki gild þar sem brotið hafði verið á Nick. Engu að síður voru þetta tilþrif dagsins. Arnar og Maggi áttu margar skemmtilegar sendingar í dag þegar þeir keyrðu inn í vörn andstæðinganna og fundi opna manninn undir körfunni.
Þessi leikur varð aldrei sérlega spennandi, en þótt yfirburðir Keflvíkinga í síðustu tveimur leikjum hafi verið þó nokkrir, þá er björninn ekki unninn. Sigra þarf í þremur leikjum og sá næsti er í Seljaskóla. Þar áttum við góðan leik um daginn, en við vitum líka að ÍR-ingar eru nú á síðasta séns og munu þeir eflaust berjast með kjafti og klóm til að halda sér á lífi í þessu einvígi. Baráttan sem hefur einkennt þeirra leik upp á síðkastið virtist brotin á bak aftur í dag, en við skulum samt gera ráð fyrir þeim snælduvitlausum á þriðjudaginn.
Okkar menn eru enn ekki búnir að finna sóknartaktinn almennilega, hittnin utan af velli er langt undir meðallagi, en meðan vörnin gerir sitt erum við í góðum málum. Nú þurfa Keflvíkingar að stilla sig inn á erfiðan leik á þriðjudaginn, mæta rétt stemmdir og tryggja sér þátttökurétt í úrslitunum gegn Snæfelli.
ÁFRAM KEFLAVÍK!