2 leikir í deildinni um helgina
Það er mikið að gera hjá hjá strákunum í Keflavík þessa dagana. Búnir að leggja Reims frá Frakklandi og CAB Madeira frá Portugal örugglega á heimavelli. Komnir í 4 liða í Hópbílabikar eftir sigra á ÍR. Nú er deildarkeppninn næst. Þar eru 2 leikir á næstu dögum. Núna í kvöld koma KR í heimsókn og svo mæta Grindvíkingar til okkar í sláturhúsið á sunnudaginn. Báðir leikirnir byrja kl 19.15. Hægt er að sjá næstu leiki undir Mfl karla/leikir.