Fréttir

Körfubolti | 18. nóvember 2003

21-0 sprettur í þriðja leikhluta dugði til að vinna öruggan sigur gegn Tindastóli, 101-90

Leiksins í kvöld gegn Tindastóli verður kannski helst minnst fyrir þær sakir að tveir leikmenn Keflavíkur þurftu að yfirgefa völlinn. Arnar Freyr fékk höfuðhögg og var fluttur burt í sjúkrabíl og Jonni sneri sig illa á ökkla og kom ekki meira við sögu eftir það. Nánar er fjallað um þessi meiðsli í annarri grein á heimasíðunni.

En sögu leiksins má annars segja í örfáum orðum. Gott start hjá Keflavík sem komst í 14-5. Síðan var það sem eftir lifði fyrri hálfleiks slakt og lítið um varnartilburði hjá okkar mönnum. Erfiðlega gekk að ráða við Clifton Cook sem setti 21. Í byrjun seinni hálfleiks settu okkar menn í fluggírinn og spiluðu pressuvörn eins og þeir eiga að sér. Þá brotnaði Tindastólsliðið og komst langtímum varla með boltann yfir miðju. Staðan í hálfleik var 51-51, breyttist í 64-57 og síðan kom 21-0 kafli og staðan var orðin 85-57. Þá var leiknum í raun lokið. Keflavík lék síðan kæruleysislega í fjórða leikhluta og niðurstaðan var 11 stiga sigur, 101-90.

Allir leikmenn Keflavíkur komu við sögu og skoruðu. Derrick og Nick voru atkvæðamestir með 23 og 21 stig. Gunni E var góður sem og Jonni og Arnar meðan þeirra naut við. Sverrir var góður í pressunni að vanda og átti drjúgan þátt í mörgum töpuðum boltum gestanna, ásamt Nick og Hirti. Halldór átti þó körfu leiksins. Hann gaf boltann á Sverri sem var við teiginn niðri við endalínu og sneri bakinu í körfuna. Síðan stakk hann sér inn í teginn og fékk flotta gólfsendingu frá Sverri - aftur fyrir sig - greip boltann og tróð honum léttilega í körfuna. Einkar glæsileg tilþrif hjá strákunum.

Annars var ákefðin ekki mikil í leiknum og ekkert í líkingu við það sem sést hefur í Evrópuleikjunum. En þegar strákarnir taka sig til, þá leika þeir vel. Ef menn hins vegar slaka um of á, þá getum við lent í vandræðum.

Nú þurfa þeir Falur og Guðjón að búa liðið undir átök helgarinnar, því Keflavík á titil að verja. Á dagskrá er keppni hinna fjögurra fræknu í Hópbílabikarnum (sem í fyrra hét Kjörísbikarinn). Við mætum Tindastóli á föstudagskvöldið kl. 20.30 í undanúrslitum. Í hinum leiknum keppir Njarðvík við Grindavík. Sigurvegarar leikjanna mætast síðan í úrslitum á laugardaginn kl. 16.30. Allir leikirnir fara fram í Laugardalshöllinni.