22 karlar hafa orðið Bikarmeistarar með Keflavík
Strákarnir eiga að vísu ekki jafn glæsilega bikarsögu og stúlkurnar, en engu að síður hafa þeir tekið 8 sinnum þátt í Bikarúrslitum. 3svar höfum við unnið titilinn síðustu 10 árin og það gerðist á 5 ára tímabili, á árunum 1993 (gegn Snæfelli), árið 1994 (gegn Njarðvík) og árið 1997 (gegn KR). Þrír leikmenn hafa tekið þátt í öllum titlunum, þeir Guðjón Skúlason, Kristinn Friðriksson og Albert Óskarsson og aðeins hafa fimm orðið Bikarmeistari með Keflavík oftar en einu sinni. En skoðum leikmannalistann:
3svar sinnum Bikarmeistari
- Albert Óskarsson
- Guðjón Skúlason
- Kristinn Friðriksson
2svar sinnum Bikarmeistari
- Jón Kr. Gíslason
- Sigurður Ingimundarson
Einu sinni Bikarmeistari
- Birgir Guðfinnsson
- Birgir Örn Birgisson
- Böðvar Kristjánsson
- Brynjar Harðarson
- Damon Johnson
- Einar Einarsson
- Elentínus Margeirsson
- Falur Harðarson
- Guðjón Gylfason
- Gunnar Einarsson
- Hjörtur Harðarson
- Jonathan Bow
- Kristján Guðlaugsson
- Nökkvi Már Jónsson
- Ólafur Gottskálksson
- Raymond Foster
- Þorsteinn Húnfjörð
Heimild: Siggi Valla
Á þessum litsta eru aðeins 4 leikmenn af þeim sem leika úrslitaleikinn á laugardaginn og því er von fyrir 6 að bæta nafni sínu á listann!