Fréttir

Körfubolti | 31. janúar 2004

25 stiga útisigur á Njarðvíkurstúlkum

Birna Valgarðsdóttir átti stórleik í Njarðvík í dag þegar Keflavík vann öruggan sigur á grönnum sínum úr Njarðvík. Birna nýtti færin sín vel og skoraði 26 stig. Eins hirti hún 10 fráköst og barðist eins og ljón allan tímann. Heimakonur voru þó inni í leiknum eftir fyrri hálfleik, en þá var staðan 30-39. En strax í upphafi seinni hálfleiks tók Kef völdin og niðurstaðan var öruggur 25 stiga útisigur, 62-87.

Leikurinn varð því aldrei spennandi en gaman að sjá að Keflavíkurvörnin var grimm þrátt fyrir að ágætt forskot hafði byggst upp. Auk Birnu var Erla Reynisdóttir og sýndi gamalkunnugt öryggi í langskotum sínum þar sem hún setti niður 4 þrista úr 5 tilraunum ásamt því sem hún lék félaga sína vel uppi og átti margar frábærar sendingar fram völlin. Erla gerir alltaf mikið fyrir lið sitt, en það var sérlega gaman að sjá hana skora af krafti á ný. Bryndís Guðmundsdóttir átti líka mjög góðan leik og Anna María var solid, eins og venjulega með 10 stig og 10 fráköst.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Nú þurfa stúlkurnar að setja sig í gírinn því næst á dagskrá er sjálfur Bikarúrslitaleikurinn gegn KR sem tapaði óvænt í Grindavík í dag. Keflavík tapaði sérlega klaufalega fyrir ári síðan og stúlkurnar fagna eflaust nýju tækifæri til þess að reyna að vinna Bikarinn. Nú hefst undirbúningurinn fyrir alvöru . . . . .