Fréttir

Körfubolti | 2. nóvember 2003

30 stiga útisigur gegn Hamri í Hópbílabikarnum

Mörg félög lenda í vandræðum í Hveragerði, enda Hamarsmenn með vaxandi körfuboltalið. En Keflvíkingar eru kannski að ná sér betur á strik eftir brösótt gengi í byrjun, því þeir unnu auðveldan og öruggan útisigur á Hamri í Hveragerði í kvöld. Stan í hálfleik var 31-47 fyrir okkar menn og lokatölur urðu 65-95. Frábær sigur hjá strákunum og má segja að Keflavík sé komið með annan fótinn í keppni "hinna fjögurra fræknu" í Hópbílabikarnum, enda mega þeir tapa seinni leiknum með 29 stigum!

Halldór Halldórsson nýtti tímann sinn vel í kvöld og hirti 8 fráköst og setti niður nokkur skot (7 stig), enda er Halldór prýðilegur skotmaður. Hjörtur Harðarson (10 stig, 2 þristar, 5 frák, 5 stoðs) sýndi nú á sér betri hliðina, en hann hefur verið frekar daufur í síðustu leikjum. Svipað má segja um Jonna sem skoraði 8 stig, tók 7 fráköst og lék góða vörn. Annars var vörnin frekar góð allan tímann, bæði maður á mann og svæðisvörn sem og pressuvörn. Falur, Gunni Einarsson og Maggi voru hvíldir fyrir Evrópuleikinn á miðvikudaginn. En bestir í kvöld voru Kanarnir, Nick (18 stig) og Derrick (32 stig, 10 fráköst). Þeir börðust vel og voru duglegir báðu megin á vellinum. Strákarnir voru sterkir í fráköstunum, hirtu alls 46 slík á móti 26 hjá Hamri.

Þetta var góður sigur og mikilvægt að þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur af seinni leiknum, því ekki veitir af fullri einbeitingu í næsta leik sem er fyrsti leikurinn í Evrópukeppninni, á miðvikudaginn gegn Michael "Wild Thing" Wilson og félögum í Ovarense, topp liðinu frá Portúgal.