Fréttir

Körfubolti | 15. nóvember 2003

31 stigs sigur í Seljaskóla gegn ÍR-stúlkum

Það eru ekki sömu álögin á kvennaliði Keflavíkur og á Karlaliðinu í Seljaskóla. Okkar konur lentu aldrei í vandræðum fyrr í dag þegar þær unnu öruggan sigur á ÍR í 1. deild kvenna. Lokastaðan var 62-93 fyrir Keflavík eftir að þær höfðu leitt allan leikinn og haft yfir í hálfleik 35-52. Stelpurnar léku ágæta vörn og héldu góðri pressu á ÍR Í kjölfarið fylgdu margar auðveldar körfur og stigaskorið var hátt.

"Við náðum að leysa 1-3-1 svæðisvörnina þeirra mjög vel og komum okkur þess vegna í góð skotfæri sem við nýttum ágætlega“, sagði Hjörtur Harðarson, þjálfari Keflavíkur í samtali við Víkurfréttir fyrr í dag. Hjörtur hefur nú leitt lið sitt til tveggja stórsigra en næstu tveir leikir í deildinni eru einmitt gegn þeim liðum sem við töpuðum fyrir síðast, KR og ÍS.

Stigahæst hjá Keflavík var Anna María Sveinsdóttir, en hún skoraði 21 stig, tók 15 fráköst og stal 5 boltum. Rannveig Randversdóttir setti 16 stig og Kristín Blöndal var með 14 stig og 6 fráköst. Allar stúlkurnar fengu að spreyta sig, léku frá 13 til 26 mín. Stigaamaskínurnar Birn og Erla Þorsteins voru með rólegra móti í dag, þó ekki kæmi það að sök, gerðu 8 og 6 stig. Eplunus Brooks var allt í öllu hjá ÍR, skoraði t.d. 30 stig og tók 19 fráköst.

Hér má sjá tölfræði úr leiknum