32ja stiga sigur gegn Stúdínum
Það er mikill munur á efsta og neðsta liði fyrstu deildar kvenna ef marka má leikinn sem háður var milli Keflavíkur og ÍS á Sunnubrautinni. Leikurinn var hvorki jafn né spennandi og í raun snerist keppnin bara um það hversu stórt Keflavík myndi vinna.
Stúdínur hafa misst töluverða spón úr sínum aski frá því í fyrra þegar þær urðu deildarmeistarar. Burðarrásar þess liðs, Alda Leif, Hafdís og Lovísa, eru allar fjarri góðu gamni og því er liðið afar veikt. Von stendur þó til endurkomu Öldu og kannski fleiri um áramótin og þá eflist liðið á ný.
Reyndar var stigamunurinn í dag ekki svo áberandi mikill fyrr en í fjórða leikhluta. Þá spýttu Keflvíkingar í lófana og völtuðu yfir Stúdínur. Í lokin var munurinn orðinn 32 stig og lokastaðan var 85-53 fyrir Keflavík.
Keflavíkurliðið er feyknasterkt um þessar mundir en verður ekki metið af þessum leik, til þess var mótspyrnan of lítil. Allar stúlkurnar fengu að spreyta sig og stóðu allar fyrir sínu.