32ja stiga útisigur í Grindavík hjá konunum
Okkar stúlkur unnu Grindavík í viðureign liðanna í 1.deild kvenna í körfuknattleik í gær. Lokatölur voru 75-107, en í hálfleik var staðan 35-52. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en í öðrum leikhluta tóku Keflavíkurkonur öll völd á vellinum og litu ekki um öxl eftir það. Forystan var 17 stig í hálfleik, 29 stig eftir þriðja leikhluta og 32 stig í lokin.
Eins og oft áður voru þær stöllur Birna og Erla Þorsteins stigahæstar með 27 og 24 stig. Hjörtur þjálfari lét þó allar stúlkurnar leika mikið, engin lék minna en 16 mínútur og engin meira en 25 mínútur. Keflavík stjórnaði algerlega fráköstunum í leiknum, hirti 45 á móti 21 hjá Grindavík. Þar af hirti Anna María 11 og Erla Þorsteins 9. Allar stúlkurnar náðu að skora í leiknum og var hittnin góð, t.d. 7 af 15 í 3ja (47%) og 16 af 18 í vítum (89%). Næsti leikur er gegn ÍR næsta laugardag, og svo styttist í undanúrslitaleikinn í Hópbílabikarnum gegn ÍS. Þá reynir verulega á liðið aftur.
Eftirfarandi stutt viðtöl eru fengin að láni hjá VF.is:
Pétur Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, játaði fúslega að hans leikmenn hefðu mætt ofjarli sínum í kvöld. „Við héngum í þeim fram undir miðjan annan leikhluta, en þar sigu þær fram úr. Þær náðu öllum fráköstum og fengu að leika lausum hala í teignum.“ Pétur sá samt ýmislegt jákvætt í leiknum til dæmis í vörninni, auk þess sem liðið var að hitta mun betur utan af velli heldur en í síðustu leikjum.Pétur Guðmundsson telur þó að hans lið hafi enn góðan möguleika á að ná einu af fjórum efstu sætunum og komast í úrslitakeppnina.
Hjörtur Harðarson hjá Keflavík var að vonum ánægður með frammistöðu síns liðs. „Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með en svo fór breiddin hjá okkur að skila sér og munurinn jókst bara upp frá því. Nú er liðið vonandi búið að finna sig eftir tvo tapleiki í röð um daginn og ef stelpurnar koma til leikja tilbúnar til að spila og leggja eitthvað á sig erum við ekki auðsigraðar.“