33 félög taka þátt í Fiba Bikarkeppni Evrópu - dregið í riðla á laugardaginn
Eins og á síðustu leiktíð tekur Keflavík þátt í Bikarkeppni Evrópu (FIBA Europe Cup). Alls taka 33 lið þátt í keppninni, en dregið verður í riðla á laugardaginn, 3. júlí, í München í Þýskalandi. Fulltrúar Keflavíkur munu vera á staðnum og reyna nota tækifærið, líkt og í fyrra, að ná hagstæðum leikdögum með tilliti til ferðakostnaðar. Í fyrra tókst t.d. að leika tvo leiki í sömu ferðinni og sparar það töluvert fé. Ekki er víst hvernig þessum liðum verður raðað í riðla, en ljóst er þó að niðurröðunin verður svæðisbundin. Ekki er ólíklegt að við mætum liðum frá Danmörku, Frakklandi og Portúgal. Liðin sem taka þátt eru þessi:
Country | Club |
Azerbaijan | BC Gala |
Bulgaria | Spartak Euroinse Sofia |
Cyprus | Keravnos Nicosia |
APOEL Nicosia | |
Apollon Limassol | |
ENAD Nicosia | |
ETHA Nicosia | |
Czech Republic | ZS Brno |
Mlekarna Kunin | |
BK SCE Decin | |
Denmark | Bakken Bears |
Estonia | Tartu Rock |
Nybit | |
France | Reims |
Hungary | Albacomp |
Iceland | SC Keflavik |
Lithuania | BC Siauliai |
Portugal | Club de Futebol Os Belenenses |
Clube Amigos de Basquete | |
Romania | CSU Asesoft Ploisti |
Dinamo Erbasu Bucuresti | |
Russia | Dynamo Moscow Region |
Arsenal Tula | |
Locomotiv Rostov | |
EURAS Ekaterinburg | |
Switzerland | BC Boncourt |
Benetton Fribourg Olympic | |
Slovak Republic | BK Lucenec |
Ukraine | MBC Nikolaev |
BC DNIPRO Dnetpropetrosvsk | |
Sumykhimprom | |
MBC Odessa | |
Turkey | Banvit SC |
Athygli vekur að félög frá Ítalíu, Spáni og Grikklandi taka ekki þátt í þessari keppni, en þau hafa stofnað með sér sérstaka deild, svokallaða ULEB deild. Á vegum FIBA eru tvær keppnir, Meistaradeild Evrópu (FIBA Europe League) og Bikarkeppni Evrópu (FIBA Europe Cup). Í þeirri fyrrnefndu leika 32 lið en 33 í Bikarkeppninni. Á vegum ULEB leika 42 lið í ULEB Euroleague.
Auk þátttöku í Bikarkeppni Fiba mun Keflavík einnig leika á Meistaramóti félagsliða á Norðulöndum í haust, en þegar er ljóst að Meistarnir frá Íslandi, Noregi og Finnlandi munu taka þátt. Afar líklegt er líka að Plannja, meistararnir frá Svíþjóð, taka þátt, en þeir eru afar sterkir og skarta m.a. tveimur sterkum Könum og öðrum tveimur öflugum leikmönnum frá Litháen. Sú keppni verður leikin á fjórum dögum í lok september. Bikarkeppni Evrópu hefst væntanlega í nóvember.