3ja stiga skot Magnúsar tryggði 26. sigur Keflavíkur á Snæfelli í röð!
Eitthvað hefur ferðalagið vestur á Stykkishólm verið erfitt því Keflvíkingar mættu ekki í leikinn fyrr en í seinni hálfleik, ef svo má að orði komast. Byrjunin var skelfileg hjá okkar mönnum en Snæfellingar voru í stuði og skoruðu grimmt. Eftir nokkrar mínútur var staðan 31-9 og allt í klessu hjá Keflavík. Ekki náðu menn að ranka við sér og forysta heimamanna jókst og varð mest um 30 stig! Þvílík byrjun! Ekkert gekk upp og andleysið var ráðandi. Í hálfleik var 22ja stiga munur, 55-33.
Menn gengu hnípnir til leikhlés en Sigurður þjálfari náði að stappa stálinu í leikmennina sem mættu til seinni hálfleiks staðráðnir í að vinna upp muninn. Og það gekk upp. Á tiltölulega skömmum tíma vann Keflavíkurliðið sig aftur inn í leikinn með grimmri vörn, mikilli baráttu og þriggja stiga skotum Gaua Skúla, en hann tók syrpu eins og oft áður. Kevin Grandberg var líka harður af sér og fiskaði m.a. mörg vítaskot sem hann nýtti vel. Þegar nokkrar mínútur lifðu leiks hafði Keflavík jafnað leikinn og allt var á suðupunkti í húsinu.
En Keflavík gerði betur en það og náði 10 stiga forskoti, 84-94. 40 stiga sveifla hafði átt sér stað, hreint ótrúlegt! En sveiflunum var ekki lokið því á skömmum tíma glutruðu okkar menn boltanum nokkrum sinnum og Snæfell jafnaði 94-94. Sextán sekúndum frá leikslokum voru Snæfellingar á vítalínunni og skoruðu úr fyrra skotinu, en ekki því seinna. Eins stigs munur fyrir Snæfell og Keflavík fór í síðustu sókn leiksins. Allir virtust eiga von á því að Damon myndi taka síðasta skotið og var hans því vandlega gætt. En Magnús stórskytta Gunnarsson beið utan 3ja stiga línunnar og fékk boltann í opnu færi. Hann hikaði hvergi og lét vaða - og bíngó! Skotið small í netinu þegar 1,6 sekúndur voru eftir og Keflavíkursigur var staðreynd. Í ljósi þess hve slök byrjunin var, var sigurinn afar sætur.
Þessi sigur var merkilegur fyrir þær sakir að þetta var sá 26. í röð gegn Snæfelli, en alls hafa félögin keppt 28 sinnum. Fyrstu leikirnir tveir töpuðust árið 1979 í 2. deildinni, en svo áttust félögin ekki við fyrr en 1990 í úrvalsdeild. Síðan þá hafa félögin keppt 26 sinnum og ávallt hefur Keflavík unnið. Reyndar er Snæfell eina félagið sem Keflavík hefur aldrei tapað fyrir í úrvalsdeildinni. Gaman verður að fylgjast með því hvort og þá hve lengi þessi sigurganga heldur áfram.
Nú er komið jólafrí og mun heimasíðan á næstunni gera upp fyrri hlutann. Strax er þó ljóst að árangurinn er góður, Keflavík vann æfingamótin tvö í haust og svo Kjörísbikarinn í síðasta mánuði. Liðið hefur hins vegar ekki náð sér jafn vel á strik í Intersport deildinni, en þó oftar en ekki unnið jöfnu leikina. Liðið er nú í 3ja sæti, tveimur stigum á eftir KR og Grindavík, og í ákjósanlegri stöðu til að glíma við toppsætið á nýju ári.