4. stiga forusta Keflavíkur á toppi IE. deildarinnar
Keflavík sigraði Fjölni í Grafarvoginum, 93-102 og náði þar með 4. stiga forustu á toppnum í Iceland Express-deildinni.
Leikurinn átti að fara fram 28. des. en var frestað vegna parket framkvæmda í íþróttahúsinu í Grafavogi enda er slíkt krafa frá KKÍ.
Keflavík náði fljótlega 7. stiga forustu en heimamenn jöfnuðu 15-15. Jafnræði var með liðunum restina af fyrsta leikhluta og endaði hann 26 : 24 fyrir heimamenn. Rétt fyrir lok fyrsta leikhluta áttu Fjölnismenn innkast og ein sekúnda eftir af skotklukkunni innkastið var tekið og Drejaj tók þriggjastigaskot aþrengdur og setti það beint oní. Frábært.
Annar leikhluti hélt áfram á svipuðum nótum en um miðjan leikhlutann tóku Keflvíkingar góðann sprett , sigu framúr og voru með forystu í leikhléi 44 : 52. Þegar rúm mínúta var eftir af öðrum leikhluta endurtók Tommy leikinn frá Drejaj í fyrri hálfleik. Ein sekúnda eftir af skotklukku, innkast og skot. þrjú stig til Keflavíkur.
Keflavík hélt forystunni í þriðja hluta og dæmt var frekar vafasamt tæknivíti á Keflavík fyrir að kalla "skot" þegar Fjölnismaður skaut að körfu. Munurinn hélt áfram að vera 7 - 10 stig og endaði hlutinn 65 : 74.
Síðasti leikhluti var æsispennandi og náðu Fjölnismenn að minnka muninn í 2 stig 78 : 80 síðan var hann 2 og 4 stig þar til í stöðunni 84 : 88 þá fékk Kristinn Jónasson sína 5. villu og Fjölnir tæknivíti að auki og keflavík því 4 víti og boltann í leik. Þá breyttu gestirnir stöðunni í 84 : 95 og 2 mínútur eftir. Leikurinn endaði síðan með 9 stiga sigri Keflavíkur 93 : 102.
Stigahæstir voru B.A með 25. stig og Jonni með 20. stig. Jonni hefur verið að skora meira í vetur en oft áður, var einnig með 9. fráköst. Tommy átti fínan leik og skoraði 19. stig ( 3/3 í þriggja ) en þessi frábæri leikmaður á þó mikið inni. Maggi og Susnjara skoruðu 12. stig og Maggi með 3. þrista.
Góð umfjöllun var um leikinn í hadegisfréttum stöðvar 2 en lítið sem ekkert í fréttablaðinu, vf.is eða á karfan.is. Bæði karfan.is og vf.is stóðu sig mun betur á síðasta tímabili í umfjöllun um Keflavíkurliðið.
Susnjara settur boltann ofaní í gær.