4 ungar framlengja samning
Í gær framlengdu 4 stelpur samning sínum við Keflavík til tveggja ára, en með þessum undirskriftum er ljóst að Keflavíkurliðið verður hið sama og síðasta tímabil, þó með 2 nýja leikmenn, en það eru Hrund Jóhannesdóttir og Ingibjörg Jakobsdóttir.
Stelpurnar sem framlengdu í gær eru Árný Sif Gestsdóttir (fædd 1993), Eva Rós Guðmundsdóttir (fædd 1994), Sigrún Albertsdóttir (fædd 1993) og Telma Lind Ásgeirsdóttir (fædd 1993). Stelpurnar eru allar mjög efnilegir leikmenn og eiga klárlega eftir að vera góður styrkur fyrir Keflavíkurliðið þegar fram líða stundir. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur óskar stelpunum alls hins besta á komandi árum með liðinu.
Áfram Keflavík!
Frá vinstri: Telma Lind Ásgeirsdóttir, Sigrún Albertsdóttir, Jón Halldór Eðvaldsson, Eva Rós
Guðmundsdóttir og Árný Sif Gestsdóttir.