5 Keflvíkingar í uppgjöri KKÍ
Hvorki meira né minna en 5 Keflvíkingar urðu fyrir valinu í dag þegar KKÍ gerði upp fyrri hluta Iceland Express deildarinnar. Verðlaunin voru veitt í höfuðstöðvum KKÍ í hádeginu í dag. Það voru Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express og Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ sem veittu verðlaunin.
Eftirtaldir leikmenn og þjálfarar hlutu verðlaun.
Úrvalslið Iceland Express-deildar kvenna
1. Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík
2. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir - KR
3. Margrét Kara Sturludóttir - KR
4. Bryndís Guðmundsdóttir - Keflavík
5. Jaleese Butler - Hamar
Besti þjálfarinn:
Ágúst S. Björgvinsson - Hamar
Dugnaðarforkur/Besti varnarmaður:
Jacquline Adamshick - Keflavík
Besti leikmaður í umferðum 1-11:
Jaleese Butler - Hamar
Úrvalslið Iceland Express-deildar karla
1. Pavel Ermolinskij - KR
2. Ægir Þór Steinarsson - Fjölnir
3. Hörður Axel Vilhjálmsson - Keflavík
4. Jón Ólafur Jónsson - Snæfell
5. Lazar Trifunovic - Keflavík
Besti þjálfarinn:
Ingi Þór Steinþórsson - Snæfell
Dugnaðarforkur/Besti varnarmaður:
Ryan Pettinella - Grindavík
Besti leikmaður í umferðum 1-11:
Pavel Ermolinskij - KR
Besti dómarinn er valinn af öllum þjálfurum í Iceland Express deildum karla og kvenna en þeir voru beðnir að velja sex dómara og raða þeim í sæti. Besti dómarinn í Iceland Express-deildunum var kjörinn Sigmundur Már Herbertsson.