61 - 114: Létt æfing að Hlíðarenda í kvöld
Eftir nokkurra mínútna leik gegn Hlíðarendapiltum hafði Keflavíkurhraðlestin sett 20 stig gegn 4 stigum heimamanna og ljóst var í hvað stefndi. Tónninn var settur með aggressívum varnarleik og Valsmenn virkuðu ráðalausir og létu plata sig út í hraðan leik og skotkeppni.
Eftir fyrsta leikhluta var staðan 6-29, í öðrum leikhluta jafnaðist aðeins leikurinn og hálfleikstölur voru 24-56. Seinni hálfleikur bauð upp á meira af því sama og endaði leikurinn með 53ja stiga sigri, 61-114.
Í sjálfu sér er ekki mikið markvert um þennan leik að segja, þetta var skylduverkefni Keflavíkur sem leyst var hnökralaust af hendi. Hraðinn var mikill og stöðugt voru Valsmenn pressaðir stíft þannig að þeir misstu boltann í gríð og erg. Þetta gaf færi á mörgum hraðupphlaupum og auðveldum sóknarleik Keflvíkinga sem virtust geta skorað að vild.
Ekki reyndi á Keflavíkurliðið í þessum leik en upp úr stendur flottasta karfa leiksins. Hana á Jón Nordal Hafsteinsson sem kom fljúgandi inn í teiginn eftir misheppnað vítaskot Damons, greip boltann á lofti og hamraði honum í körfuna. Glæsilegir taktar.
Eftir þrjá daga hefst síðan alvaran þegar KR mætir í Kjörísinn til Keflavíkur. Þá verður fjör . . .