7. flokkur kvenna - Íslandsmót
Önnur umferð á Íslandsmóti 7. flokks kvenna var haldin í KR húsinu um síðustu helgi. Þar sem fáar stúlkur æfa með 7. flokki er liðið einnig skipað stúlkum úr 6. flokki. Þær komu mjög einbeittar í alla leikina og voru öflugar bæði í vörn og sókn. Eins og stigatölur sýna höfðu þær mikla yfirburði í leikunum og unnu þá alla með glæsibrag.
Keflavík – KR 45-10
Keflavík – Grindavík 54-8
Keflavík – Haukar 53-13
Keflavík – Njarðvík 42-11
Á heimasíðu stúlknanna má finna mikið af myndum frá leikjum helgarinnar.