Fréttir

Körfubolti | 5. maí 2004

7 keflvískar stúlkur í 12 manna U-16 landsliðshópi kvenna

Henning Henningsson þjálfari U-16 ára unglingalandsliðs kvenna og Jón Halldór Eðvaldsson aðstoðarþjálfari hans hafa valið endanlegan tólf manna leikmannahóp fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Stokkhólmi síðar í þessum mánuði.

Þeir leikmenn sem fara til Svíþjóðar eru eftirfarandi:

Bára Fanney Hálfdánardóttir Haukar
Helena Sverrisdóttir Haukar
Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík
Guðrún Harpa Guðmundsdóttir Keflavík
Hrönn Þorgrímsdóttir Keflavík
Linda Stefanía Ásgeirsdóttir Keflavík
María Ben Erlingsdóttir Keflavík
Ragnheiður Theodórsdóttir Keflavík
Bára Bragadóttir Keflavík

Ingibjörg Skúladóttir UMFH
Ingibjörg Vilbergsdóttir UMFN
Margrét Kara Sturludóttir UMFN

Norðurlandamótið fer fram dagana 19.-23. maí. U-16 pilta, sem og U-18 ára lið pilta og stúlkna taka einnig þátt í mótinu.

Þetta val þjálfaranna er góður vitnisburður um öflugt kvennastarf í Kef og hafa þeir Kristinn Óskarsson og Jón H Eðvaldsson þjálfað stúlkurnar með frábærum árangri á liðnum árum, en þær urðu í vor Íslandsmeistarar í 10. flokki. Við óskum landsliðinu góðs gengis í Svíþjóð.