75 stiga sigur á Stjörnunni
Fyrsta umferð hópbílabikars fór fram í gær, þegar Keflavík spilaðir við Sjörnuna í Garðabæ. Keflavík sigraði leikinn 62-137 eða með alls 75 stigum. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um leikinn og þá yfirburði sem Keflavík hafði í leiknum, Keflavík skorði td flautu körfu í endan á öllum leiklutum. Öll varnarkerfin voru prófuð og æfð í leiknum. Sem dæmi um þann léttleika sem var í leiknum, þá tók Maggi þrjú vítaskot í lok leiksins, eitt venjulegt, eitt með vinstri, og eitt spjaldið ofan í. Maggi var að hitta mjög vel í leiknum og einnig átti AJ góðan leik.
Seinni leikurinn fer fram í Keflavík á sunnudaginn kl 19.15. Liðið heldur svo út á þriðjudag til Finnlands og mættir Lappenranta á miðvikdag. Þaðan verður svo farið yfir til Letlands og spilað við BK Riga á föstudag. Það er því síðasti séns að sjá liðið spila áður en það fer út í leiknum á sunndag.