Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 16. október 2005

7.flokkur drengir

 

 

Nú hafa þessir peyjar keppt tvær helgar í röð. Síðustu helgi léku þeir í Njarðvík og unnu tvo leiki, Tindastól og Fjölni, en töpuðu með þremur fyrir Breiðablik og Njarðvík í  hörkuleikjum. Leikurinn við Njarðvík endaði nánast í slagsmálum og ekki oft sem þjálfari gestaliðs, skiptir út dómurum í miðjum leik. Njarðvíkingar sem voru umsjónaraðili mótsins verða að fara að gera eitthvað í þessum málum hjá sér. Ungi dómarinn sem skipti útaf var mikið feginn að losna og lítill greiði gerður með því vera látinn dæma svona óundirbúinn.
Þessa helgi 15.og 16.okt. léku drengirnir í E riðli 8. flokks ( Mikið rétt.   E riðill, en í  8.fl.dr. eru 25 lið skráð til leiks í Íslandsmót ) Þar unnu drengirnir alla sína leiki á móti Snæfelli, Reykdælum ( Hörkulið frá Kleppjárnsreykjum sem endaði í 2. sæti ) Stjörnunni og Hrunamönnum. Drengirnir munu því leika í D - riðli næst þegar þessi aldurshópur keppir.