7.flokkur drengja
Ekki er það á hverjum degi sem yngriflokkalið Keflavíkur eru send alla leið austur á Egilsstaði í fjölliðamót. Sunnudaginn 27.11. brá 7.flokkur drengja sér til Egilsstaða og lék 2 leiki við Hattarmenn og ÍR-inga í 8.flokki drengja Flogið var að morgni og leiknir 2 leikir. Siðan var farið í Pizzu áður en haldið var í flug heim.
Þetta var reyndar önnur tilraun, þar sem mótið átti að fara fram 13.nóv. en sá dagur fór í að bíða á Reykjavíkurflugvelli frá 08:00 til kl. 14:30 þegar slegið var af að fara þann daginn. Þá helgi fór Ármann/Þróttur austur degi fyrr og léku sinn leik við Hattarmenn, en við komumst ekki austur, og eigum við og ÍR, enn eftir að leika við Ármann/Þrótt. Verið er að bíða eftir nýju húsi sem þeir í Ármanni/Þrótti eru á fá á næstu dögum, til að leika þá leiki.
ÍR leikurinn vannst með um 20 stigum, en Hattarleikurinn tapaðist með 8 stiga mun. ÍRingar unnu Hött með 10. Mótið stendur því galopið, og velta úrslit mótsins á þessum tveimur leikjum sem eftir eru. Höttur vann Ármann/Þrótt fyrir austan með um10 stigum.
Svona til gamans, þá fór þjálfari drengjanna síðast með lið til Egilsstaða árið 1984 og hafði ekki komið þar síðan.
Þá var með í ferð móðir eins drengsins sem nú fór austur. En hún var þá að hefja sinn feril í Mfl.kvenna í Keflavík.