8 liða úrslit í Bikar kvenna í dag, laugardag kl. 17: Keflavík A gegn Keflavík B
Ekki gerum við ráð fyrir því að Keflavíkurstúlkur muni eiga í erfiðleikum með að komast í undanúrslit bikarsins þetta árið. Ástæðan er sú að andstæðingarnir eru einnig Keflvíkingar, nefnilega B-liðið. Enginn ætlar að vanmeta B-liðið sem samsett er af ungum og aðeins eldri leikmönnum, en samt teljum við sigurlíkur A-liðsins töluverðar.
Leikurinn hefst kl. 17 í dag, laugardag, og hvetjum við áhorfendur til að mæta og sjá al-keflvískan körfuboltaslag kvenna.