Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 18. október 2005

8.flokkur drengja

Drengirnir í 8.flokki fóru síðustu helgi 15.-16.okt. inn í Smára og kepptu fyrstu umferð Íslandsmótsins. Drengirnir stóðu sig vel og munaði minnstu að þeir kæmust upp í A-riðilinn. Þeir unnu Val og Breiðablik - A, en töpuðu leik við Þór Akureyri, þar sem þeir leiddu leikinn fyrir utan síðustu einu og hálfu mínútuna. Siðan tapa þeir fyrir Breiðablik -B með 7stigum, en það lið vann mótið. Þessi úrslit vekja vissulega athygli, þar sem þessir drengir voru að fara upp og niður á milli A og B riðils í fyrra, en hafa síðan þá, misst stigahæsta leikmann siðasta tímabils ásamt öðrum lykilmanni. Reyndar hafa þeir fengið nýjan leikmann Atla Dag (  sjá mynd ) og var hann að leika vel, þó nýbyrjaður sé að æfa körfu.
Drengirnir eru greinilega farnir að spila betur saman sem lið, og vonandi tekst þeim að komast upp í næstu tilraun.

Það vekur vissulega athygli að þegar úrslit mótsins eru skoðuð, þá er eins og Breiðabliksliðin hafi leikið einum leik færra en hin liðin. Sennilega hafa þau ekki leikið á móti hvoru öðru. Annað liðið hlýtur þá að hafa gefið leikinn. Hugsanlega eru þá einhver viðurlög við því að gefa leik eða mæta ekki í leikinn?  Skrítin framkoma í Íslandsmóti ef ekki er um einhver mistök að ræða á úrslitasíðu KKÍ.