Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 23. nóvember 2010

9. flokkur drengja

Önnur umferð Íslandsmótsins hjá drengjum í 9. flokki (9. bekkur grunnskólans) fór fram hér í Keflavík um helgina. Drengirnir leika í b-riðli ásamt Fjölni, Breiðablik, Njarðvík og Tindastóli.(sjá myndir) Til að gera langa sögu stutta þá unnu drengirnir einn leik en töpuðu þremur sem þýðir að drengirnir leika áfram í sama riðli. Tindastólsdrengir, sem komu niður úr a-riðli eftir fyrstu umferð Íslandsmótsins, unnu mótið nokkuð örugglega. Breiðablik endaði neðst og leikur því þriðju umferðina í c-riðli.

Lið okkar var skipað eftirtöldum leikmönnum: Kumasi Mána, Birki Skúlasyni, Arnóri Breka, Eiði Snæ, Guðmundi Ólafssyni, Knúti Eyfjörð, Kristni Sveinssyni, Oliver Bjarnasyni, Michael Davíðssyni, Sigurþóri Inga, Tryggva Ólafssyni og Benedikt Jónssyni.

Áfram Keflavík !

 
Keflavíkurdrengir. Guðbrand þjálfara vantar á myndina.

 
Breiðablik ásamt Aðalsteini þjálfara.


Fjölnisdrengir ásamt Smára þjálfara.    

 
 Njarðvíkurdrengir. Friðrik Ragnarsson þjálfara vantar á myndina.


Tindastólsdrengir ásamt Kára Maríssyni þjálfara.