9. flokkur drengja í úrslit í bikarnum!
9.fl.kk er kominn í úrslit í bikarnum eftir góðan sigur á liði Fjölnis. Leikurinn fór fram í Rimaskóla í Grafarvogi í kvöld (þriðjudagskvöld).Keflvíkingar hófu leikinn af krafti og tóku strax forystuna. Eftir um 7 mín. leik var staðan orðin 21 – 5 Keflavík í vil. Fjölnismenn neituðu samt að gefast upp og í hálfleik voru það 13 stig sem Keflavík hafði í forskot. Seinni hálfleikur hófst með látum og náðu Fjölnismenn aðeins að rétta úr kútnum og minnkuðu muninn í 10 stig en þá rifu drengirnir sig upp og juku forskotið aftur. Var munurinn mestur 17 stig. Undir lokin náðu Fjölnismenn aðeins að minnka muninn en það dugði þeim ekki. Keflavík hafði sigur 52 – 45 og er þar með komið í úrslit!
Keflavík mætir þar KR sem lagði Breiðablik b af velli.
Stigaskor í leiknum var:
Sigfús Árnason 20 stig
Alfreð Elíasson 16 stig
Almar Guðbrandsson 9 stig
Guðmundur Gunnarsson 6 stig
Sindri Björnsson 1 stig