9. flokkur kvenna - hörkuleikur í Njarðvík
9. flokkur kvenna spilaði s.l. mánudag við Njarðvík í átta liða úrslitum í bikarkeppni kvenna. Mikil spenna var fyrir leikinn þar sem þetta eru tvö sterkustu liðin í þessum árgangi. Umgjörðin í kringum leikinn var góð og mættu ca. 100 manns á leikinn og myndaðist flott stemmning í húsinu og úr varð hörkuleikur. Njarðvíkur stelpurnar mættu mjög grimmar til leiks og eiga hrós skilið fyrir mikla baráttu frá fyrstu mínútu til þeirra síðustu. Jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik en okkar stelpur voru samt alltaf 5-10 stigum yfir. Í seinni hálfleik sigu okkar stelpur lengra fram úr og lönduðu að lokum öruggum sigri 74-55. Stelpurnar eru því komnar í 4 liða úrslit og nú er stefnan sett rakleiðis á úrslitaleikinn.Til hamingju stelpur með góða baráttu og frábæran sigur......Áfram Keflavík.