9. flokkur kvenna bikarmeistari 2012
Sunnudaginn 26. febrúar spilaðu stelpurnar í 9.flokk kvenna til úrslita í bikarkeppni KKÍ við Njarðvík. Leikið var í Vodafonehöllinni á Hliðarenda.
Keflavíkurstelpur sigruðu örugglega 53 – 16. Stelpurnar mættu gríðarlega einbeittar til leiks og góð stemming var í hópnum. Sem dæmi um hvað stúlkurnar voru einbeittar var staðan 17 – 0 eftir fyrsta leikhluta og 29 – 6 í hálfleik, 39 – 9 eftir 3 leikhluta og lokatölur 53 - 16 eins og fyrr segir.
Maður leiksins var valin Laufey Rún Harðardóttir en hún skoraði alls 21 stig, tók 8 fráköst og var með 3 stoðsendingar.
Gríðarlega vel gert hjá stúlkunum og þær vel að sigrinum komnar.
Innilega til hamingju stelpur og Keflavík.