Fréttir

Körfubolti | 6. apríl 2003

9. flokkur kvenna er Íslandsmeistari, en drengjaflokkur tapaði naumlega í úrslitum

Eins og frá var greint léku tveir flokkar okkar til úrslita á Íslandsmótinun í dag, sunnudag. Báðir úrslitaleikirnir voru gegn grönnum okkar úr Njarðvík og vannst annar en hinn tapaðist.

9. flokkur kvenna varð Íslandsmeistari eftir 60-48 sigur gegn Njarðvík. Staðan í hálfleik var 37-25 fyrir Keflavík. Með þessum sigri varð flokkurinn tvöfaldur meistari ársins, en þær unnu einmitt Njarðvíkinga í úrslitum Bikarkepninnar fyrr í vetur. Sigurinn var nokkuð öruggur og atkvæðamestar í liði Íslandsmeistaranna voru þær María Ben (17 stig, 10 fráköst), Bryndís (15 stig, 10 fráköst) og Linda (14 stig). Við óskum stúlkunum og þjálfara þeirra til hamingju með frábæran árangur í vetur.

Drengjaflokkurinn lék stórskemmtilegan leik gegn Njarðvíkingum og endaði leikurinn með fjögurra stiga sigri Njarðvíkur, 92-88. Í hálfleik var staðan 40-38 fyrir Njarðvík. Drengjaflokkurinn hefur sýnt miklar framfarir í vetur og til dæmis töpuðu strákarnir fyrsta leiknum gegn Njarðvík með 40 stiga mun, 55-95. Næsti leikur endaði með 12 stiga mun, einnig fyrir Njarðvík, en nú munaði eingöngu 4 stigum í hörkuleik. Atkvæðamestir voru Halldór (26 stig, 17 fráköst), Sveinbjörn (18 stig, 12 fráköst), Ólafur Geir (11 stig) og Atli (10 stig, 3 þristar). Við óskum strákunum til hamingju og ljóst er að mikið býr í þessum drengjum.