Fréttir

Körfubolti | 5. apríl 2003

9. flokkur kvenna og drengjaflokkur leika til úrslita á morgun gegn Njarðvík

Keflavík átti nokkur lið í eldlínunni í dag og í gærkvöldi.

9. flokkur kvenna vann stórsigur á Fjölni í undanúrslitum, 80-28, og leikur kl. 10 í fyrramálið, sunnudag, til úrslita gegn Njarðvík. Keflavíkurliðið hafði mikla yfirburði, en atkvæðamestar voru Bryndís (19), María Ben (14) og Guðrún (10). Á morgun fá þær tækifæri til að vinna tvöfalt, en fyrir mánuði lögðu þær einmitt Njarðvíkurstúlkur 55-31 í úrslitleik Bikarkeppninnar.

Drengjaflokkur gerði sér lítið fyrir og vann Hauka með 14 stigum, 72-58, eftir að hafa leitt með einu stigi í hálfleik, 33-32. Halldór Halldórsson fór á kostum í leiknum og “átti” teiginn báðu megin á vellinum. Dóri skoraði 25 stig og hirti 28 (!) fráköst og sýndi að hann kemur sterkur inn í meistaraflokkinn á næsta ári. Sveinbjörn Skúlason skoraði einnig grimmt (17) og allt liðið lék vel, ekki síst í vörninni. Á morgun leika piltarnir úrslitaleik kl. 11.45 gegn Njarðvík, en Njarðvíkingarnir hafa afar sterkt lið og eru taldir sigurstranglegir.

Keflavík átti tvö lið í undanúrslitum unglingaflokks kvenna og gekk þeim báðum illa í dag. A-liðið tapaði stórt gegn Haukum, 70-31, en liðið lék afar illa. Fyrr í vetur vann einmitt Keflavík Hauka í bikarúrslitum og því má sjá að hlutirnir hafa ekki verið að ganga upp í dag. B-liðið sótti ekki gull í greipar ÍR-stúlkna og tapaði líka stórt 41-75. Það verða því Haukar og ÍR sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn í unglingaflokki kvenna.

B og C lið meistaraflokks eru bæði komin í undanúrslit frekar vandræðalítið og leika um næstu helgi. B-liðið (unglingaflokkurinn) leikur laugardaginn 12. apríl, en C-liðið (1. flokkurinn) leikur í undanúrslitum gegn Ármanni/Þrótti kl. 14.00 á morgun.