9. flokkur stúlkna - 4 sigrar
Þriðja umferð á Íslandsmóti 9. flokks stúlkna var helgina 12. og 13. febrúar og að þessu sinni var spilað í Ljónagryfjunni í Njarðvík.
Með Keflavík í A riðli eru Grindavík, Hamar/Hrunamenn, Njarðvík og Haukar. Góð stemning var meðal Keflavíkurstúlkna en þær hafa verið mjög duglegar að æfa í vetur og flestar mæta einnig reglulega á morgunæfingarnar. Þjálfari stúlknanna er Jón Guðmundsson.
Úrslit leikja:
Keflavík – Haukar 81-15
Stigahæstar : Sara 27, Sandra 12, Kristrún 10, Laufey 7, Helena og Ellen 6 stig hvor, og aðrir minna
Keflavík – Grindavík 66-20
Stigahæstar: Sandra 26, Sara 18, Helena 8, og aðrir minna
Keflavík – Hamar/Hrunamenn 77-18
Stigahæstar: Sandra 24, Ellen 12, Sara og Bríet 10, Helena 7, og aðrir minna
Keflavík – Njarðvík 58-36
Stigahæstar: Sara 22, Sandra 12, Helena 9, Kristrún 5, og aðrir minna
Stúlkurnar sýndu frábæra takta um helgina og eru enn ósigraðar á Íslandsmóti.
Áfram Keflavík