9. flokkur stúlkna Íslandsmeistarar 2012
9. flokkur stúlkna varð Íslandsmeistari í körfubolta um helgina þegar leikið var til úrslita í Njarðvík.
Á laugardaginn spiluðu stelpurnar í undanúrslitum við Njarðvík og fóru með sigur 56 – 28. Úrslitaleikurinn var við lið Grindavíkur í gær, sunnudag og unnu stelpurnar þann leik með nokkuð sannfærandi hætti 51–20.
Stelpurnar eru vel að sigrinum komnar enda hafa þær æft vel undir leiðsögn Jóns Guðmundssonar. Allar fengu að spila um helgina og flestar settu einhver stig í púkkið.
Algjörlega til fyrirmyndar hjá stelpunum og óskum við þeim til hamingju með árangurinn en þær eru nú bæði handhafar bikar- og Íslandsmeistara tiltils.