98-89 sigur á Njarðvík í skemmtilegum nágrannaslag
Keflvíkingar tryggðu sér í kvöld rétt til að leika til úrslita í Reykjanesmótinu á fimmtudaginn gegn Haukum. Okkar menn hófu leikinn af krafti og virtust ætla að sigla Njarðvíkinga í kaf í byrjun, tölur eins og 15-6 og 21-8 gáfu ýmislegt til kynna. En eins og oft áður varð leikur þessara liða jafn þegar á leið og Njarðvík jafnaði í stöðunni 64-64. En Keflavík náði aftur yfirhöndinni og hélt nokkuð öruggri forystu til leiksloka, þó aldrei yrði munurinn meiri en 10 stig. Lokatölur voru 98-89 fyrir Keflavík.
Derrick Allen fór á kostum í leiknum og sýndi áhorfendum hvílíkur baráttuhundur er þar á ferð. Pilturinn, sem er bara 22ja að aldri, hirti fráköst báðum megin á vellinum allan tímann. Ekki var tekin "statistik" en fróðir menn telja að hann hafi hirt a.m.k. 25 fráköst í leiknum, auk þess sem hann skoraði grimmt undir körfunni. Nick Bradford náði sér hins vegar ekki á strik, en það er mikill bolti í honum og hann þarf greinilega aðeins meiri tíma til að sýna sínar bestu hliðar.
Annars voru okkar menn ágætir í leiknum, en ekki mikið meira en það. Gunnar Einarsson var reyndar frábær bæði í vörn og sókn og er í fantaformi um þessar mundir. Maggi og Falur settu niður nokkrar bombur, en varnarleikurinn var köflóttur allan tíman. Sóknarleikurinn gekk vel þegar hraðinn var til staðar, en menn urðu soldið staðir þegar Njarðvík herti vörnina í seinni hálfleik. Dómararnir voru ekki í stuði í kvöld án þess að á annað liðið hafi frekar hallað en hitt.
Njarðvíkingar voru nokkuð grimmir allan tíman og reyndust þeir Páll og Friðrik erfiðir undir körfunum. Auk þess er Kaninn þeirra, Brandon Woudstra, flinkur sóknarmaður og góð skytta. Arnar Smárason kom sterkur inn og smellti þremur þristum úr horninu.
Nokkrir pústrar voru í leiknum og gaman var að sjá að mikill metnaður var hjá báðum liðum að standa sig vel, eins og alltaf þegar þau mætast. Við vorum sterkari í þetta skiptið, en ljóst er að von er á mörgum hörkuviðureignum í vetur.